top of page

The Child Attachment and Play Assessment (CAPA) 

- Fan Zhang barna- og fjölskyldusálfræðingur

Child Playing with Wooden Toys

Yfirlit

The Child Attachment and Play Assessment (CAPA) er matstæki fyrir s.s. félagsráðgjafa, sálfræðinga, kennara, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, geðlækna, hjúkrunarfræðinga og alla þá sem starfa með börnum, til að skima tengslahegðun og margþætt áföll í lífi barna á aldrinum 3-11 ára.

Um framkvæmd CAPA

CAPA matið byggir á leik barns með fígúrur (doll-play) sem er tekið upp á videó og tekur um 25 mínútur í framkvæmd. Stuðst er við frásagnarnálgun þar sem börnum eru gefin upphaf af sögum og þau síðan beðin um að segja og sýna hvað gerist næst. Allar sögurnar draga fram tengslavanda, t.d barnið sem brennir sig á hendinni á eldavélinni, hávaði á nóttinni þegar allir eru sofandi, og litli grísinn sem villist í göngutúrnum. Sögunar miða að ólíkum aldurskeiðum barna á aldrinum 3 – 6 ára og síðan fyrir börn á aldrinum 7 – 11 ára. 

 

Um CAPA

CAPA matstækið var þróað til að meta börn sem búið hafa við margþætta vanræsklu og ofbeldi. Nálgunin er áreiðanleg og ekki íþyngjandi þegar verið er að skima andlega líðan, tengslahegðun og tengslasambönd barna. CAPA matstækið skimar vel áhrif áfalla á þroska barna.

 

CAPA er notað af óháðum sérfræðingum í Bretlandi, og hefur meðal annars verið notað til að meta aðstæður barna sem búa við óviðunandi aðstæður, meðal annars fósturvistaðra- og ættleiddra barna til að ná fram sjónarmiðum þeirra. Einnig er CAPA notað fyrir dómstólum í Bretlandi.

Greiningaraðferð CAPA

Greiningaraðferð CAPA sameinar Dynamic Maturational Model of Attachment and Adaptation (DMM), tengslahegðunarmódel Dr. Patricia Crittenden og nálgun Winnicotts með „leik og veruleika“ og „möguleg rými“ til þess að skima tengslahegðun barns, hugsanagang, óunnin missi, og áföll samhliða DMM breytum.

 

CAPA er afurð Dr. Steve Farnfield, sem einnig setti á laggirnar meistaranám í Tengslafræðum við Roehampton Háskólann í Bretlandi. Steve hefur lokið þjálfun í ólíkum matstækjum DMM módelsins og leitt kennslu í þeim fræðum. Að auki hefur hann rannsakað málefni fóstur- og ættleiddra barna síðastliðna áratugi og skrifað fjölda greina og bókarkafla.

Kennarar námskeiðsins

fan-zhang-headshot-1-_edited.jpg

Fan
Zhang

  • Grey LinkedIn Icon

Fan Zhang er barna- og fjölskyldusálfræðingur með sérþekkingu á tengslum og lífeðlisfræðilegum

nálgunum áfalla í bernsku.

Fan er að ljúka doktorsnámi sínu um gagnsemi CAPA við mat á áföllum hjá börnum við Roehampton háskólann í Bretlandi.

unnamed_edited.jpg

Ragnheiður Guðmundsdóttir

  • Grey LinkedIn Icon

Ragnheiður er félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur sem hefur í rúm 10 ár stundað nám í tengslafræðum um víða veröld. 

Ragnheiður er framkvæmdarstjóri Tengslamat ehf. og starfar náið með börnum, einstaklingum, fjölskyldum
og barnaverndumá Íslandi.

Dagsetning

9. 10. 11. febrúar 2025​

Lífsgæðasetur St. Jó.​​​

16. 17. 18. febrúar
Akureyri

Tveir dagar í fjarkennslu
frá Bretlandi

Kennarar

Fan Zhang  barna- og fjölskyldusálfræðingur og
Ragnheiður Guðmundsdóttir 
félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur

Tímasetning

09:00-17:00

Verð

189.000.-

Staðsetning

Lífsgæðasetur St.Jó

Suðurgata 41

220 Hafnarfjörður

​Akureyri - staðsetning verður kynnt síðar​

Skráning

Bóka hér

Nánar um námskeiðið

Námskeiðið fer fram í þremur lotum; 6 dagar í stað/fjarkennslu á Íslandi og 2 dagar í fjarkennslu frá Bretlandi.
 
Nánar um loturnar
 
Til að byrja með fá þátttakendur upptökur af fyrirlestrum um CAPA áður en fyrsta lota byrjar:
 
Lota nr. 1 - Hafnarfjörður
  • 3 daga staðkennslu/fjarkennslu í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði

  • Kennslan fer fram dagana 9. 10. og 11. febrúar frá 09:00-17:00


Lota nr. 2 - Akureyri
  • Lota nr. 2 er framhald af lotu 1 og felst lotan í þriggja daga staðkennslu/fjarkennslu á Akureyri.

  • Kennslan fer fram dagana 16. 17. og 18. febrúar frá 09:00-17:00

 

Lota nr. 3
  • Lota nr. 3 felst í tveggja daga fjarkennslu frá Bretlandi með Fan Zhang og Dr. Steve Farnfield.

Vottun

Í lok þriðju lotu er þátttakendum boðið að taka áreiðanleikapróf til að öðlast réttindi bæði í notkun og greiningu CAPA gagna.

​Nánari upplýsingar um CAPA er að finna hér

bottom of page