top of page

The Meaning of the Child interview (Motc)
l & ll klínískt námskeið með Dr. Benedict Grey

Family Breakfast

Yfirlit

 

Meaning of the Child interview (MotC) námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og umönnunaraðilum innan ólíkra kerfa í samfélaginu. Námskeiðin verða kennd í staðkennslu á Íslandi og í gegnum fjarfundarbúnað.

Þetta er í annað skiptið sem þetta námskeið er haldið á Íslandi en síðast komust færri að en vildu. Sjá nánar hér.

Námskeiðin eru tvö,

  • MotC I er kennt 30. september – 2. október 2024

  • MotC II er kennt í beinu framhaldi dagana 3. og 4. október 2024.

  • Kennt er frá klukkan 9-16:00 með 1 klst hádegishléi.

  • Kennslan fer fram í Lífsgæðasetri St. Jó. , Suðurgötu 41 í Hafnarfirði.

​

​​

MotC I

​

  • ï‚· Grunn hugmyndafræði MotC.

  • ï‚· Grunn tengslahegðunar – ólík mynstur.

  • ï‚· Skoðuð verða myndbönd sem lýsa ólíkri tengslahegðun.

  • ï‚· Skoðuð verða handrit af viðtölum við umönnunaraðila.

  • ï‚· Farið verður í hvernig ákveðin orðræða er túlkuð í viðtölum við umönnunaraðila.

 

MotC II

 

  • Tveggja daga námskeið auk þess sem nemendur þurfa að skila af sér æfingum í gegnum tölvupóst samskipti við kennara og skila af sér æfingarviðtali sem er vottun á að geta tekið MotC viðtöl.

  • Fræðilegt efni

  • Skima og greina viðtöl (MotC I er undanfari þessa námskeiðs)

  • Undirbúningur fyrir MotC III námskeið fyrir þá sem vilja öðlast vottun á að geta greint MotC viðtöl. 

​

Ávinningur
 

  • Að skima og greina mynstur í orðræðu umönnunaraðila á eigin barni.

  • Öðlast þekkingu í að notast við MotC viðtalsformið.

  • Að greina hættulega orðræðu frá hættulausri orðræðu umönnunaraðila.

  • Að öðlast færni í að veita viðeigandi stuðning sem er byggð á færni umönnunaraðila í stuðningi við barnið sitt.

  • Eftir að hafa lokið MotC II, og skilað af sér viðtali til greiningar og skimunar til kennara, fá nemendur viðurkenningu sem MotC sérfræðingar. Nemandi sem tekur MotC viðtal, getur notað viðtalið til eigin ígrundunar eða fengið það greint af áreiðanlegum MotC greinanda sem lokið hefur MotC III námskeiði og staðist áreiðanleikapróf í greiningu MotC viðtala.

​

 

 

 

 

 

 

 

Leiðbeinendur

​

Dr. Benedict Grey er aðal fyrirlesari í tengslafræðum og rannsóknum fyrir doktorsnemendur við háskólann í Hertfordshire á Englandi.
Hann er einnig meðstjórnandi Cambridge Center for Attachment.

 

Ben er félagsráðgjafi og sálfræðingur að mennt með yfir 20 ára reynslu af greiningu og ráðgjöf með áheyrslu notkun tengslaaðferða innan breska fjölskyldudómskerfisins.

 

Hann hefur einnig þróað og rannsakað Meaning of the Child Interview (www.meaningofthechild.org) sem er aðferð til að skilja tengsl foreldra og barns út frá því hvernig foreldrar tala og hugsa um barn sitt.

​

Ben hefur birt fjölda fræðigreina um sambönd ummönnunaraðila og barns, notkun tengslamats fyrir fjölskyldudómstólum og rannsakar nú sambönd foreldra sem eiga börn með einhverfugreiningu. 

​

Ben er einnig í ráðgefandi ritstjórn tímaritsins „Human Systems: Therapy, Culture and Attachment“.

​

Honum til halds og trausts verður samstarfsmaður hans og eiginkona, Juliet Kesteven. Juliet er félagsráðgjafi og yfirumsjónarmaður og þjálfari við Cambridge Centre for Attachment og hefur unnið með börnum og fjölskyldum í yfir 30 ár ásamt því að búa yfir umtalsverði þekkingu og reynslu í sálfræði. Juliet er einnig heiðurskennari við Bedford háskólann í Bretlandi.

​

​

Hér er hægt að nálgast ítarefni um MotC
http://www.meaningofthechild.org/


Hér er hægt að nálgast ítarlegri upplýsingar um kennara námskeiðsins
Dr. Benedict Grey

Juliet Kesteven

​​

MotC III & IV

​

Fyrir þá sem vilja öðlast frekari áreiðanleika í notkun á MotC, mun Ben bjóða upp á MotC III (Coding the MotC) and IV (Formulation and Planning Intervention) 11.-14 nóvember 2024. Sjá nánar.

 

Takmarkað pláss í staðkennslu

Athugið að aðeins eru 25 pláss í staðkennslu í boði og eru þeir sem skrá sig á bæði námskeiðin, sem eru seld saman, í forgangi. Þeir sem hafa áhuga á aðeins fyrsta námskeiði geta sent tölvupóst á netfangið tengslamat@tengslamat.is og tekið verður til athugunar hvort unnt sé að mæta þeim óskum.

Ben grey.jpg
Juliet Kesteven .jpg

Dagsetning

MotC I  30. sep – 2. okt 2024 

MotC II 3. og 4. okt 2024

​

Leiðbeinandi

Dr. Benedict Grey
félagsráðgjafi og sálfræðingur
Juliet Kesteven
félagsráðgjafi
​​

Tímasetning

09:00 - 16:00

​

​

Verð

MotC I  Kr. 82,800

MotC II Kr. 55,200​​​​

​​​

​

Staðsetning

Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, Hafnarfirði, 2 hæð

fundarsalur Lungað 

Bóka núna

Fara á skráningarsíðu

​​​​​​​​

​

​

bottom of page