top of page
Search

Vinsælt CAPA-námskeið aftur á dagskrá vorið 2027

Oct 1
2 min read

Tengslamat býður upp á vandað og ítarlegt námskeið í Child Attachment and Play Assessment (CAPA) í apríl 2027. Fan Zhang, barna- og fjölskyldusálfræðingur, kemur þá aftur til Íslands til að kenna námskeiðið, eftir að hafa hlotið afar góðar viðtökur þegar hún kenndi CAPA hér á landi síðast.


CAPA er matstæki sem nýtist fagfólki sem starfar með börnum, meðal annars félagsráðgjöfum, sálfræðingum, kennurum, þroskaþjálfum, iðjuþjálfum, geðlæknum og hjúkrunarfræðingum. Matstækið er ætlað til að skima tengslahegðun og margþætt áföll hjá börnum á aldrinum 3–11 ára.

CAPA byggir á leik barns með fígúrur sem tekinn er upp á myndband og tekur framkvæmd matsins um 25 mínútur. Barnið fær upphaf að sögum og er síðan beðið um að segja og sýna hvað gerist næst. Með þessari nálgun gefst tækifæri til að fá innsýn í tengslahegðun barns, hugsanagang, óunninn missi og áhrif áfalla á þroska þess.



Fan Zhang er barna- og fjölskyldu-sálfræðingur með sérþekkingu á tengslum og lífeðlisfræðilegum nálgunum áfalla í bernsku. Fan er á loka metrunum að ljúka doktors-námi við Roehampton háskólann í Bretlandi þar sem hún rannsakar gagnsemi CAPA við mat á áföllum hjá börnum.




Námskeiðið verður kennt í þremur lotum. Fyrstu tvær loturnar fara fram 5.–7. apríl og 12.–14. apríl 2027 í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði, í stað- og/eða fjarkennslu. Þriðja lotan samanstendur af tveimur dögum í fjarkennslu frá Bretlandi með Fan Zhang. Áður en fyrsta lota hefst fá þátttakendur einnig aðgang að upptökum af fyrirlestrum um CAPA.


Í lok námskeiðsins gefst þátttakendum kostur á að taka áreiðanleikapróf og öðlast þannig réttindi bæði í notkun og greiningu CAPA-gagna.


Námskeiðið kostar 189.000 kr. og hægt er að skipta greiðslum í þrjá hluta.

Vegna mikillar eftirspurnar og góðra viðbragða við síðasta námskeiði býður Tengslamat nú upp á forbókun á námskeiðið. Þeir sem tryggja sér sæti með forbókun fyrir 1. janúar 2027 fá 10% afslátt af námskeiðsgjaldinu, og greiða því 170.100 kr. í stað 189.000 kr.


Þetta er því einstakt tækifæri fyrir fagfólk sem vinnur með börnum og vill öðlast ítarlegri þekkingu og þjálfun í CAPA-matstækinu undir leiðsögn eins af helstu sérfræðingum á þessu sviði.


Nánari upplýsingar og skráning: CAPA námskeiðið hjá Tengslamati

 
 
 

Comments


bottom of page