Tvö ný námskeið um tengsl barna og fjölskyldna haldin í maí 2026
- 12 hours ago
- 1 min read

Tengslamat ehf. stendur fyrir tveimur námskeiðum í maí næstkomandi sem ætluð eru fagfólki sem starfar með börnum og fjölskyldum.
Annars vegar verður haldið námskeið fyrir fagfólk sem starfar með börnum, þar sem lögð er áhersla á að auka skilning á tengslahegðun og áhrifum hennar á líðan og þroska barna. Námskeiðið er ætlað breiðum hópi fagfólks, meðal annars innan skóla, félagsþjónustu og barnaverndar. Námskeiðið verður haldið 7. og 8. maí í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði og er jafnframt í boði í fjarkennslu.
Hins vegar er um að ræða námskeið fyrir félagsráðgjafa þar sem fjallað verður um tengslahegðun barna og umönnunaraðila, greiningu á öruggum og óöruggum tengslum og uppbyggingu í vinnslu mála með fjölskyldum. Námskeiðið verður haldið 18. og 19. maí í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði og er jafnframt í boði í fjarkennslu.
Námskeiðin eru byggð á svokölluðu DMM-líkani (Dynamic-Maturational Model of Attachment and Adaptation), sem leggur áherslu á að greina tengslahegðun og skima fyrir áföllum í lífi barna og fjölskyldna.
Markmið beggja námskeiða er að styrkja faglega þekkingu og hæfni þeirra sem vinna með börnum, með það að leiðarljósi að bæta stuðning og þjónustu við börn og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu.
Leiðbeinandi er Ragnheiður B. Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur.



Comments