Forvarnir í stað plástra

Liðin eru rúm þrjú ár síðan við þrjár, sérfræðingar í málefnum barna og foreldra, rituðum grein í Heimildina 2. júní, 2023, um samband á milli uppeldisaðstæðna, tengslamyndunar og líðan barna. Tilefnið var umræða um uggvænlegan ópíóðafaraldur á meðal ungmenna en greinin var hugsuð sem rökstuðningur og hvatning til forvarnaraðgerða í stað kostnaðarsamra björgunaraðgerða eftir að skaðinn er skeður.
Við teljum að fyrirheitum þáverandi heilbrigðisráðherra, um að skera upp herör og bregðast við umræddum vanda með þjóðarátaki, hafi alls ekki verið fylgt nægilega eftir. Þótt viss framför hafi orðið í fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við foreldra á meðgöngu og í kringum fæðingu skortir þar enn mikið á. Áfram fjölgar barnaverndartilkynningum án viðeigandi þjónustuinngripa, enn fjölgar sjálfsvígum og áhættuhegðun ungs fólks og áfram heldur líðan og einbeitingarskortur skólabarna að vera þungt áhyggjuefni foreldra og fagfólks í skólum.
Því leyfum við okkur að deila hér greininni á ný en með henni viljum við hvetja til markvissari aðgerða og dýpri umræðu um uppeldisaðstæður barna.





Comments