top of page
Search

Ný og spennandi námskeið á vorönn 2024


Dr. Kristine Clay

Með hækkandi sól viljum við vekja athygli á áhugaverðum námskeiðum á vorönn fyrir umönnunaraðila  og fagfólk. Dr. Kristine Clay er með doktorsgráðu í sálfræði og löggiltur geðheilbrigðisráðgjafi og meðferðaraðili. Hún auk þess höfundur aðferðarfræðinnar í samþættri foreldraþjálfun.   

Kristine er eigandi ráðgjafarfyrirtækisins Aspen Counseling í Washington, Bandaríkjunum, og hefur þróað “Overstory” foreldraþjálfun fyrir fjölskyldur og fagfólk.  Námskeiðin verða kennd í Lífsgæðasetri St. Jó í Hafnarfirði en þáttakendur geta einnig kosið að sitja námskeiðið í gegnum Zoom fjarfundarbúnað. Námskeiðin eru kennd á ensku.


21 Maí 2024

Fósturforeldri: Að skapa öryggi á óöruggum tímum


Hvort sem um ræðir fósturforeldra, félagsráðgjafa eða sérfræðinga í barnavernd, bjóðum við þér að efla færni í að styðja við og hafa jákvæð áhrif á líðam barna innan fósturfjölskyldna. Við bjóðum upp á námskeið sem miða að því að nýta innsæi úr taugavísindum og tengslafræðum við slíkar aðstæður.

 

Þarfir barna eru misjafnar og krefjast sérhæfðar greiningar á aðstæðum, markvissra íhlutana og sérhæfðrar þekkingar til að skapa stöðugleika, meðhöndla börn sem hluta af margþættu kerfi, veita stuðning við að takast á við áskoranir, leiðbeina þeim í gegnum erfiða lífsatburði og efla sjálfsþekkingu.   



 22 - 23 Maí 2024

 Klínísk inngrip fyrir fjölskyldur í kjölfar sambúðarslita


 Þetta er námskeið ætlað fagfólki sem vinnur með fjölskyldum sem búa við átök eftir sambandsslit og eru á tveimur heimilum.

 

Verkefnin eru flókin og krefjast sérhæfðrar þekkingar á mati, íhlutunum og sérhæfingar til að skapa jafnvægi, styðja foreldra í að draga úr átökum, bæta samskipti og smíða nýja samskiptagrundvöll, auk þess að aðstoða börnin við að aðlagast lífi á tveimur heimilum og efla sjálfstyrkingu.

 



25 og 26 Maí 2024

Námskeið fyrir foreldra:  Minni átök, meiri friður

 

Við bjóðum foreldrum, sem glíma við samskiptavanda og átök, að taka þátt í námskeiði sem miðar að því að skapa friðsælla umhverfi fyrir þá og ekki síst börnin þeirra. Markmiðið er að kenna foreldrum nýjar aðferðir til að eiga í samskiptum, takast á við streitu og tryggja barni sínu bestu mögulegu uppeldisskilyrði. 

 

Námskeiðinu verður síðan fylgt eftir með3x1 klst á Zoom með viðeigandi stuðning og ráðgjöf til að styðja við foreldra.

 


12 views

Recent Posts

See All
bottom of page